Ég, um mig, frá mér, til mín

Ný og spennandi tækifæri á erfiðum tímum

21.02.2009 12:31:58 / buska

enn ein helgin

mér finnst alltaf vera helgi:) þessar vikur fljúga svo hratt framhjá manni að maður hefur ekki undan. Síðustu 2 helgar höfum við farið upp í sumarbústað en ákváðum að vera heima þessa helgi. Sem er bara ágætt. RE hefur alltaft verið svo erfið fyrstu nóttina í bústaðnum. Ekki alveg sátt við það að vera þarna en ekki heima hjá sér. Held að hún sé svo heimakær eins og mamma sín:)

en annars gengur allt sinn vanagang á þessu heimili. Við mæðgurnar förum í sund 2 í viku og reynum svo að kíkja í heimsóknir inn á milli. Er að vísu búin að vera frekar löt í því að fara út að labba en ætla að fara að laga það. Þýðir ekkert að sitja á sínum feita rassi og gera ekki neitt og kvarta yfir aukakílóum:)

er að vísu búin að gera samninginn niður í vinnu og er að bíða eftir því að hann gangi í gegn þannig að ég geti farið að fara í ræktina og hreyft mig eh. Ömmurnar búnar að bjóðast til þess að vera með RE á meðan og svo hef ég heyrt að gæslan í laugum sé alveg frábær. Þannig að ætli maður noti hana ekki eh líka:)

þegar maður hefur ekkert að segja þá fer maður að byrja að tala um veðrið:) hvað er með þetta veður. Ef það er ekki rigning þá er helv.... kuldi. Maður verður bara þunglyndur á þessu helv...:) en ætli maður verði ekki bara að brosa og taka á móti þessu. Hlakka til þegar það kemur sumar og maður getur leyft litlu skottunni að fara út og leika:)

ætla að fara að chilla fyrir framan imbann:) nýta það á meðan RE sefur:)




Kidda skrifaði
Já þetta veður má alveg fara að lagast, fór að skokka um daginn og ég varð rennandi blaut... alveg frá toppi til táar.. hundleiðinlegt að fara út í svona veðri, helgarnar líða of hratt alveg eins og vikurnar, ætlaði einmitt að koma til ykkar um helgina en ég gat ekki hreyft mig í gær... þannig ég komst ekkert út í orðsins fyllstu merkingu !!

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 45676
Dagatal