Ég, um mig, frá mér, til mín

Ný og spennandi tækifæri á erfiðum tímum

29.05.2009 11:28:40 / buska

Eins og titilinn segir

þá eru ný og spennandi tækifæri á hverju götuhorni. Í gærkvöldi rakst ég á eitt slíkt. Mér var boðið að fara á Herbalife kynningu sem ég og gerði og tveim og hálfum tíma síðar labbaði ég út sem dreifingaraðili. Ætlaði bara að kynnast vörunni og nota hana:)

Hef notað þessa vöru tvisvar sinnum og í seinna skiptið þá gerði hún sitt gagn, ef svo má segja. Ég missti nokkur kíló, var hressari og með meiri orku.

Vandinn hjá mér er sá að ég borða ekki morgunmat, þegar ég borða hann er ekkert sérstaklega hollur. Eftir að ég byrjaði að drekka sheikinn fylltist ég af orku, hætti að verða alltaf svöng og þessi nart tilfinning minnkaði. Og núna er bara að prufa fleiri vörur og athuga hvort að maður komist ekki nær réttum og hollum lífstíl.

Þar sem ég er voðalega ný í þessu þyrfti ég á ykkar hjálp að halda:)
Þeir sem eru forvitnir um þessa vöru endilega hafið samband við mig, hvort sem er í gegnum síma eða tölvupóst.

Tölvupóstfangið mitt er bjorg1978@gmail. com

HLAKKA TIL AÐ HEYRA Í YKKUR:)



» 0 hafa sagt sína skoðun

10.03.2009 18:04:41 / buska

væri til í að fara í svona:)



finnst þessir þættir alveg æði!


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.02.2009 12:31:58 / buska

enn ein helgin

mér finnst alltaf vera helgi:) þessar vikur fljúga svo hratt framhjá manni að maður hefur ekki undan. Síðustu 2 helgar höfum við farið upp í sumarbústað en ákváðum að vera heima þessa helgi. Sem er bara ágætt. RE hefur alltaft verið svo erfið fyrstu nóttina í bústaðnum. Ekki alveg sátt við það að vera þarna en ekki heima hjá sér. Held að hún sé svo heimakær eins og mamma sín:)

en annars gengur allt sinn vanagang á þessu heimili. Við mæðgurnar förum í sund 2 í viku og reynum svo að kíkja í heimsóknir inn á milli. Er að vísu búin að vera frekar löt í því að fara út að labba en ætla að fara að laga það. Þýðir ekkert að sitja á sínum feita rassi og gera ekki neitt og kvarta yfir aukakílóum:)

er að vísu búin að gera samninginn niður í vinnu og er að bíða eftir því að hann gangi í gegn þannig að ég geti farið að fara í ræktina og hreyft mig eh. Ömmurnar búnar að bjóðast til þess að vera með RE á meðan og svo hef ég heyrt að gæslan í laugum sé alveg frábær. Þannig að ætli maður noti hana ekki eh líka:)

þegar maður hefur ekkert að segja þá fer maður að byrja að tala um veðrið:) hvað er með þetta veður. Ef það er ekki rigning þá er helv.... kuldi. Maður verður bara þunglyndur á þessu helv...:) en ætli maður verði ekki bara að brosa og taka á móti þessu. Hlakka til þegar það kemur sumar og maður getur leyft litlu skottunni að fara út og leika:)

ætla að fara að chilla fyrir framan imbann:) nýta það á meðan RE sefur:)





» 1 hafa sagt sína skoðun

11.02.2009 14:00:29 / buska

kuldi og aftur kuldi

verð að viðurkenna að ég er orðin frekar þreytt á þessum kulda alltaf hreint. Ekki hægt að fara í almennan göngutúr og leyfa blessaða barninu að fara út í vagn og sofa. Þess vegna er hún sofandi núna í vagninum inn í forstofur:) og unar sér vel. Búin að sofa í einn og hálfan tíma og á meðan hef ég get skúrað alla íbúðina. Trúið mér, komin tími til:)

að vísu er litla prinsessan á heimilinu komin aftur með kvef.... stutt síðan að hún var með þennan andskota. Ætla að vona að hún losni við hita eins og síðast.



Við erum byrjuð í ungbarnasundi og var fyrsti tíminn á mánudaginn. Okkur fannst mjög gaman. RE spjallaði og spjallaði og hló og fannst þetta mjög gaman. Fannst skemmtilegast þegar kennarinn tók hana og lyfti henni upp á fótunum. Hún skríkti og hló:) þessi litla mús. Ætla að vona að ég komist á morgun með hana. Leiðinlegt að missa af tíma nr 2.

Síðustu helgi fórum við í bústað. Ótrúlega gott að fara úr borginni og í afslöppun. Vorum bara 3 og höfðum það ótrúlega gott. Kíktum á Flúðir á laugardeginum því þar var vinafólk okkar í bústað. Gátum ekkert notað pottan því það er SVO kalt. En vonandi með vorinu getum við farið að nota hana meira og leyft RE að prufa líka.

Erum að velta því fyrir okkur að fara til Spánar um páskana. Erum að vísu eftir að skoða það nánar því það er ekkert ódýrt í dag að fljúga, sérstaklega ef við þurfum að millilenda í leiðinni og svona.

Nú er ég að fara í 2 fermingar á sama degi og þarf því að kaupa kjól á okkur mæðgur. Hver getur sagt mér hvar sé hægt að kaupa fallega kjóla á viðráðanlegu veðri á okkur? allar hugmyndir teknar vel:)

Nú er maður að fara að stunda ræktina á fullu... að vísu ekki búin að redda mér kortinu en vona að ég nái að redda því í næstu viku um leið og vaktin mín fer á kvöldvakt. Svo er drukkið hér Herbalife shake á hverjum morgni. Aðeins til að hjálpa manni. Allt gert til að flýta fyrir. Að vísu langar mig að prufa danska kúrin. Veit um eina sem er búin að losna við ca 10 kg síðan  um miðjan janúar... SÆLL eigum við eh að ræða það:) en er ekki komin lengra nema að hugsa um það.

jæja ætla að ath með snúlluna mína.


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.01.2009 12:36:26 / buska

Norðurlandið um helgina

nú ætlar maður að fara að skella sér í norðurlandið. Ætlum að fara á morgun, þeas á fimmtudaginn, því á laugardaginn ætlum við að fara á krókinn og kíkja á fólkið þar og eiga góða stund.




Annars er allt gott að frétta af litlu fjölskyldunni. RE stækkar og stækkar og alltaf eh nýtt að gerast hjá henni. Hún er farinn að skríða út um allt. Farinn að skríða á fjórum fótum og hætt að skríða skriðdreka skriðið:) hún er farinn að standa upp við allt og auðvitað hefur hún dottið nokkrum sinnum og GUÐ hvað það kemur hávær grátur. Svo sárt og svo reið. En svo þegar það er allt búið þá er bara reynt aftur:) hún er nú búin að vera veik, með hita og kvef. Ekkert sérstaklega ánægð með þetta kvef. Var voða lítið og vildi helst skríða inn í mig aftur. Sem gerði það að verkum að hún er enn meira háðari mér og vill ekki mikið sjá pabba sinn. En við erum nú að vinna í þessu:) er að venja hana við vagninn núna. Hefur ekki viljað vera mikið í honum síðan hún fæddist. En það gengur bara vel. Þarf ekki að keyra vagninn langa vegalengd til að hún sofni og ekki á meðan. En svefnrútínan á næturnar gengur ekki eins vel. Hún fer vanalega að sofa um tíu en vaknar aftur um miðnætti og þá vill hún fara að leika. Ekki alveg að fatta að það sé komin nótt og öskrar bara á mömmu sína. En þetta auðvitað tekur allt tíma eins og hvað annað:)




gerði áramótaheit um að fara að æfa á fullu. Reyna að komast í form áður en ég byrjaði að vinna, komast í gallann:) ég er EKKI byrjuð. RE búin að vera veik og svo er það alltaf eh. En það er engin afsökun. Ætla að fara að vinna í þessu eftir helgi:) segir sá lati;)

RÍKISSTJÓRNIN: ég veit ekki alveg hvað hægt er að segja um þessi mál.  Ætla að segja sem minnst. Nóg að aðrir tjá sig um þessi mál.



það snjóar og snjóar. Væri til í að eiga snjósleða á svona dögum:)

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.01.2009 21:58:00 / buska

...........



» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2009 23:55:10 / buska

Vestmannaeyjar

þó að þetta sé fallegustu eyjarnar þá efast nú maður stundum þegar maður er kominn upp í Herjólf með fjölskylduna og maður verður SJÓVEIKUR!!!!  báturinn var varla lagður úr höfn þegar ég var orðin sjóveik. Aumingja Gotti minn þurfti að vera með litlu prinsessuna og ekki var hún sú brattasta heldur. Gotti varð meira að segja smá sjóveikur í endan og þá er nú mikið sagt, sjómaðurinn sjálfur:) þegar í land var komið var maður mjög fegin. Að vísu tók smá tíma að koma sjóveikinni burt en maður var allavega aðeins hressari og sú litla aðeins hressari þegar hún fékk loksins að lúlla almennilega og fá að borða. Við gistum á sveitabæ sem afi hans Gotta í eyjum á og heitir Þorlaugargerði. Lítll og sætur sveitabær. Þar vorum við öll og unum okkur vel. Restin af liðinu, þ.e.a.s. tengdam, tengdap, litli bróðir hans Gotta og bróðurbörnin hans komu seinnipartinn og svo var farið á Heiðavegin og þar var farið í gönguna.

Þetta er flottasti þrettándinn sem ég hef farið á. Að visu hef ég bara verið á þrettándanum heima og hér í rvk en þetta slær allt út. Álfar, tröll og jólasveinar, geðveik flugeldasýning og fjölmenn ganga. Labbað var eftir gröfunni þar sem grýla og leppalúði voru og þar á eftir komu jólasveinarnir, sem héldu á kyndlum. RE fannst nú eh lítið var í þetta og steinsofnaði í fanginu á mömmu sinni og steinsvaf alla gönguna og þegar tröllin komu fram í brennunni. Sem var nú í fína lagi því hún var alveg búinn á því eftir þennan blessaða dag. Fórum svo í smá kvöldkaffi og sáum eina 6 vikna skvísu og GUÐ hvað hún var lítið. Fæddist 12 merkur, mín sem fæddist rúm 17:) vá hvað hún var lítil.

Kíktum aðeins í smá hitting seinna um kvöldið. Amma Hilda passaði snúlluna sem var ekki alveg sú auðveldasta, sem er nú kannski ekki skrýtið. Alveg yfirkeyrð og vildi nú líka bara mömmu sína. Hún var ný sofnuð þegar við komum, svaf við hliðina á frænda sínum sem heldur mikið upp á hana:)

Laugardagur var nú tekinn heldur rólega. Vaknað um hálf ellefu, fengið sér morgunmat. Krakkarnir fóru að gefa hestunum brauð en við Gotti fórum í smá göngu í sveitinni. Svo gott veður og sveitaloftið ekkert verra:)

þarf að hætta en skrifa framhald síðar:)



» 1 hafa sagt sína skoðun

08.01.2009 17:00:26 / buska

RE er 7 mánaða í dag:)



litli monthaninn minn:) svo montin þegar hún stendur svona upp. Svo klár þessi litla snúlla:)



finnst voða gaman að hnoðast á pabba sínum eða mömmu sinni.



» 1 hafa sagt sína skoðun

06.01.2009 15:09:10 / buska

uuuuhhmmm

var að koma heim úr þessum fína göngutúr:) RE sat allan tíman og fannst allt mjög spennandi svo þegar við komum heim lagði ég hana í vagninn og steinsofnaði á núinu. Er að fara að prufa nýja rútinu á henni. Frá því að hún fæddist hefur hún ekkert viljað sofið í vagninum nema þegar hann er á ferðinni, að vísu er þetta nú eh mér að kenna. Hef verið allt of löt við þennan blessaða vagn, þeas að láta hana sofa í honum. En með nýju ári koma nýjar áherslur:) RE vaknaði kl 10 í morgun og í gærmorgun sem eru framfarir því hún hefur síðustu vikur vaknað um hádegi og þar af leiðandi farið seint að sofa. Í gærkvöldi lagði ég hana til svefns um 22 og var vöknuð aftur um miðnætti og sofnaði aftur um hálf tvö. Og það versta er að maður er farinn að þurfa aðeins að slást við hana því hún vill hafa þetta eftir sínu höfði og er ekki alveg að skilja af hverju það sé ekki að virka. Hún er farinn að skríða út um allt, er eins og skriðdreki. Dregur sig áfram á höndunum og reynir að spyrna með fótunum. Er aðeins farin að reyna að fara á fjórir en það tókst ekki betur en það í morgun að hún datt fram fyrir sig og guð hvað hún var reið litla greyið. Greinilegt að það var vont því síðar sá ég að hún var með bólgna vör. Svo er hún farin að standa upp í sófanum og í rúminum sínu og svo þegar hún er að hnoðast ofan á annaðhvort mér eða Gotta. Finnst það alveg æðislegt:) að vísu mér þetta aðeins of snemmt að fara að standa á löppunum en þar sem pabbi hennar byrjaði að labba 7 mánaða þá er þetta greinilega eh í ættinni:) en guð hjálpi mér ef hún ætlar að fara að apa eftir pabba sínum:) svo er maður farinn að þurfa að passa allar snúrur og svona því þetta er svo spennandi fyrir svona litla putta eins og hennar RE:)

við erum að fara til eyja um helgina og ætlum að eyða þrettándanum þar. Þar er víst gert mikið upp úr þrettándanum þannig að það verður voða spennandi og örugglega meira spennandi fyrir RE. Vona bara að veðrið verði gott á föstudaginn því við ætlum að fara með Herjólfi:) höfum ekki farið til eyja síðan fyrir ári síðan þannig að það var alveg kominn tími til. Svo gaman að koma þangað:)

en nú þarf ég að fara að snúa mér að heimilisstörfum. Þau gerast ekki að sjálfu sér:)

þangað til næst knús knús:)



» 0 hafa sagt sína skoðun

03.01.2009 15:56:24 / buska

2009

hef stundum verið að velta því fyrir mér hvort að maður ætti ekki að hætta þessu bloggi en svo fær maður bakþanka og heldur áfram þessum skrifum. Hvaða skrifum!!! þetta eru engin skrif. Maður skrifa nokkrar línur um allt og ekki neitt. Hef reynt að velta fyrir mér og skrifa um daglegt líf, fréttir og annað en einhvern vegin þá hverfa þessi skrif alltaf. Svo er sannleikurinn líka sá að ég er nú ekkert sérlega góður penni og hugmyndasnauð í þokkabót:)

Er búinn að vera að velta fyrir mér liðna árinu 2008. Hvað það markverðasta varð og annað. Það sem stóð upp úr hjá mér og var það að við Gotti eignuðumst dóttur þann 8. júní og urðum mjög stoltir foreldrar. Í dag er hún sólargeislinn okkar. Það er ótrulegt hvað hún stækkar hratt. Finnst eins og það hafi verið í gær þegar við komum með hana heim af fæðingardeildinni. Í dag er hún farin að skríða, toga sig upp og aðeins farinn að labba með. Farinn að borða hinar ýmsu fæðutegundir og komin með 2 tennur:) að vera móðir eða besta og skemmtilegasta hlutverk sem ég hef verið í og ætla ég ekki að hafa langt á milli barna:) farinn aðeins að kvíða fyrir því að þurfa að fara að vinna aftur en held að það verði ágætis tilbreyting. Þarf að vísu að hugsa mína vinnu alla upp á nýtt. Þó að ég elski vinnuna mína þá elska ég fjölskylduna meira þannig að ég er ekki að sjá mig í vaktavinnu. Ætli ég byrji samt ekki á vaktinni minni og ath svo hvað ég geti gert:) ég er farinn að leita að dagmömmu fyrir RE og búin að sækja um leikskólapláss. Já maður þarf sko algjörlega að vera snemma í þessu. Aðsókn er mikil. Er að vona að ég fái pláss hjá einni sem mér var bent á, hún er víst mjög góð.

Annað sem gerðist á árinu 2008 að við seldum íbúiðna okkar í Hafnarfirði og keyptum aðra í Kópavogi. Var nú nokkuð vesen að fá hana en að lokum tókst það og erum við búin að koma okkur mjög vel fyrir:) okkur líkar mjög vel hérna. Þetta er rólegt hverfi og höfum mjög fallegt útsýni:) við keyptum okkur líka T. jeppa sem var búinn að vera draumur þannig að nú stoppar enginn snjór okkur:)

svo kom kreppan 2008 en ég reyni nú að hugsa sem minnst um hana þó að maður komist nú ekki hjá því. Margir einstaklingar fóru illa úr henni og ég veit ekki alveg hvort að þetta sé rétti staðurinn til að kenna hinum eða þessum um. Vona bara að við íslendinar náum okkur upp úr þessum á þessu ári 2009:)

ætla ekki að hafa þetta lengra að þessu sinni

eigið þið góða helgi:)



» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2008 17:11:15 / buska

Nýtt ár.......

ég vil óska öllum gleðilegt ár og þakka fyrir hið gamla:) 
vona að árið 2009 verði langt  um betra en 2008:) 
en það markverðasta á árinu fyrir mig er að við Gotti eignuðumst litla prinsessu sem varð skírð Ragnhildur Emilía:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.12.2008 22:21:57 / buska

jóla jóla

þá eru jólin komin og farinn:) hér á bæ er búið að skreyta hátt og lágt og keypt var fyrsta jólatréð. Við Gotti höfum nefnilega aldrei keypt jólatré síðan við byrjuðum að búa og því var ákveðið að kaupa eitt í ár. Og keyptum við þetta flotta alvöru tré. 
Þegar ég bjó heima á Blönduósi þá vorum við alltaf með gervi tré þannig að það er tilbreyting að vera með alvöru tré, lyktin og því sem því fylgir:)  læt hér mynd fylgja með:)


við vorum heima hjá mömmu á aðfangadag. Og þar sem þetta voru fyrstu jólin hennar Ragnhildar Emilíu ríkti mikil tilhlökkun að sjá hvernig hún mundi bregðast við öllum þessum pökkum. En þar sem hún er nú ekki nema 6 mánaða var þessu teki öllu með ró en þvílíka pakkaflóðið í kringum jólatréð. RE fékk allnokkra pakka sem innihéldu marga fallega hluti. Ég var þó nokkra stund að taka utan um alla þessa pakka en það tókst að lokum.
svo er búið að fara í nokkur jólaboð og borða algjörlega á sig gat:) en það fylgir nú bara þessum blessuðum jólum:)


litla snúllan okkar er 6 mánaða síðan 8. des og farinn að babla á fullu. Farin að mynda orðið ma og stundum ma ma sem mömmunni líkar mjög vel:) hún er farinn að borða voða vel og er orðinn algjör mathákur. Finnst eiginlega allt gott:) er líka að stækka og stækka þó að hún hafi nú ekki þyngst nema um 400 gr í síðustu skoðun og lengst um 1 cm:) hún er nú ekki farinn að skríða ennþá en aðeins farinn að toga sig fram á höndum þegar hún er á maganum á gólfinu. Farinn að sitja alveg ein og óstudd og það sem er nú kannski það markverðasta að hún er farin að toga sig upp ef hún nær góðu haldi. Farinn að verða hrædd um það að hún byrji að lappa á undan skriðinu:)

En við óskum öllum gleðilegra hátíðar og gleðilegs nýs árs. Hlökkum til að mæta á nýju ári.

knús knús og kossar

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.11.2008 19:49:34 / buska

mont og aftur mont

haldið þið ekki að dóttur mín sé ekki bara komin með 2 TENNUR og ekki orðin 6 mánaða:):):):):):):) ég er svo montin. Hún stækkar svo hratt. Ekki farinn að skríða ennþá en veltir sér eins og henni sé borgað fyrir það. Svo þegar hún er búin að fá leið á því þá er bara vælt;) algjör letihaugur. Svo er maður að reyna að hjálpa henni en það gengur ekki alveg. Hún verður að finna þetta sjálf þessi elska:) hlakka til þegar hún verður farin að skríða um öll gólf.

Annars er komin smá tilhlökkun í mann vegna jólanna. Ætla að fara að koma mér í bakstur og svo eru jólagjafirnar að skríða saman. Vona að ég geti klárað þær í vikunni. 

Svo ætlum við að reyna að fara með prinsessuna í myndatöku í vikunni, voða gaman:)

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 00:19:20 / buska

Litla prinsessan mín:)



BARA SÆTUST:)

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.11.2008 20:41:25 / buska

jólin nálgast:)

akkurat í kvöld langar mig svo að hlusta á jólalög. Á fullt af lögum með Frostrósum í tölvunni og þarf að sitja á mig að spila þau ekki:) en ætla samt að bíða aðeins:) en nú er maður farinn að kaupa í bakstur og á næstu dögum ætlar maður að verða fyrirmyndar húsmóðir og byrja að baka fyrir jólin:) og svo í næstu viku verða jólainnkaupin sett á fullt. Fór í kringluna á miðvikudaginn og tók lunch með Kiddu systur og ætlaði svo í jólainnkaup en það tókst ekki alveg. Það gengur betur næst:)

Hver gerir jólahreingerningu í dag?  maður tekur til oftast nær eh á hverjum degi, hvað er jólahreingerning frábrugðin:) er þetta ekki bara eh sem fylgir gamla tímanum og er ekki við lýð í dag? nei ég spyr bara.

Ég hætti í náminu mínu. Þetta var ekki alveg að ganga upp, húsmóðirin og námið. Fer næsta haust:)

eftir að facbookið kom þá hefur maður algjörlega gleymt þessu bloggi sínu. Einhvern vegin þá fréttir maður allt í gegnum facebookið þannig að spurningin er bloggið á undanhaldi? maður spyr sig.

svo er maður í sófa hugleiðingum. Orðin frekar leið á RAUÐA sófanum sem við erum með þannig að nú er það tungusófa kaup:)

kallinn farinn á skotvopnanámskeið þannig að núna fjölgar örugglega ferðum norður í land:) þarf að grafa mín meðmæli upp síðan úr lögguskólanum þannig að ég geti fengið skírteinið og svo er bara að fara á fuglanámskeið þar sem maður þarf að fá yfir 7.5:) samkvæmt mínum heimildum er það ekkert auðvelt:)

en næstu daga ætla ég að njóta þess að hafa kallinn heima í fæðingarorlofi, LOKSINS:):):):):):):) og njóta þess að það séu að koma jól:):):):):)



» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 23
Heimsóknir
Í dag:  30  Alls: 44665
Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti